9.16.2004

Jæja, heldurðu ekki bara að það borgi sig að vera þolinmóður? Nú er liðinn nokkuð langur tími síðan ég skrifaði síðast, og viti menn...minn stærsti dagdraumur hefur ræst. Ótrúlegt en satt, þetta varð meira að segja betra en ég þorði að vona í mínum óraunhæfustu dagdraumum :) Ég er rétt að komast yfir það að þetta sé of gott til að vera satt. Nú ætla ég að njóta þess sem ég á greinilega skilið. Ég gerði nefnilega samning...í huga mér sko...að ef mér tækist að koma mér út úr vondum, andlega niðurdrepandi aðstæðum þá ætti ég sko skilið að einn af mínum draumum rættist...og það hefur hann svo sannarlega gert!!! Ég vil ekki lýsa því nánar hér og nú...

..::The truth shall be revealed::..

2 Comments:

At 3:07 e.h., Anonymous Nafnlaus said...

Og hver er þessi draumur? Og hvenær verður hann gerður opinber?

Forvitinn Keli

 
At 10:09 f.h., Blogger Hugrun said...

Tíhí..hæ, ég held þú sért minn eini lesandi :)

Sko...æi, mig langar til að segja þér það, en þegar tíminn er réttur þá færðu að vita. Þetta er löng saga sem á sér enn lengri forsögu. Gallinn er bara að ég veit ekki alveg hvenær rétti tíminn er...

 

Skrifa ummæli

<< Home

                                                                         |
                                                                                                                                    Ocean, a Free Software Library of the World's Religious Literature