Róleg og góð helgi, fór í sund í gærmorgun með Karen, átti svo góðan dag með dúllunni minni...Steina amma hennar kom í heimsókn og við fórum svo seinnipartinn í tveggja ára afmæli til Evu Hrundar í næsta húsi. Svo höfðum við mamma það bara kósí yfir upptöku á Idol. Fékk svo að sofa út í morgun, fór svo með Alexöndru á andapollinn að gefa brabra. Ég hélt að hún yrði hrædd við endurnar, það var svo mikill hávaði í þeim, en nei, nei...hún sagði bara "bða bða" og elti þær út um allt. Að vísu endaði sú heimsókn á því að ein gæsin nartaði í puttann á henni. En þetta endaði vel eins og allt sem gott er.
Svo fórum við í heimsókn til foreldra hans Andra...rólegt og notalegt eins og alltaf. Ég var í gamla herberginu hans Andra að læra og Alexandra var í góðu yfirlæti á meðan.
Mmmm....góða nótt!!
1 Comments:
hæ sætust!!! ætlaði bara að segja hæ.. takk fyrir kommentið á blogginu.. hafðu það sem allra best.. knússs!!!1
Skrifa ummæli
<< Home