Við hittumst nokkrar vinkonur úr skólanum í gær og horfðum á Amazing Race og átum pizzur og nammi....kjöftuðum svo til hálf eitt í gærkvöldi. Þegar ég svo loksins háttaði mig ofan í rúm var ég svo upprifin og full af hugmyndum að ég ætlaði aldrei að geta sofnað...ég sem ætlaði að fara snemma að sofa svo ég yrði fersk í skólanum...en geri bara betur í kvöld.
Reyni að blogga um þessi hjartans málefni sem halda fyrir mér vöku á kvöldin.
1 Comments:
..alveg magnað þegar að maður hugsar svona yfir sig að það heldur fyrir manni vöku....síðan er ég alltaf að fá þvílíku blogghugmyndirnar áður en ég fer að sofa en man aldrei punkt af þeim þegar að ég vakna á morgnanna.... :)
Skrifa ummæli
<< Home