4.13.2005

Úff, ég þarf að drífa mig í að sækja um vinnu...er búin að vera á leiðinni að gera það frá því eftir áramót. Er þegar búin að senda inn eina umsókn á Húsasmiðjuna og er að fara í AB-búðina á eftir...hehe...ég að vinna í föndurbúð...hmmm...

Er annars komin með langan lista af stöðum sem ég ætla að reyna á, nú er bara að finna tíma í þetta, er að kafna í verkefnavinnu.

Btw. finnst ykkur að það geti verið fræðilegur möguleiki á að skrifa 1200-1800 orða ritgerð um þágufallssýki? En eignarfallsflótta? Ég er algerlega á móti þessu!! Er að hugsa um að segja við kennaran "MÉR langar ekki til að gera þetta!!"

0 Comments:

Skrifa ummæli

<< Home

                                                                         |
                                                                                                                                    Ocean, a Free Software Library of the World's Religious Literature